Nú er komið að því! Ekki missa af! Útsendarar klúbbsins með formann umhverfisnefndar í fararbroddi hefur fundið frábært svæði sem við getum strax gert að yndislegu rjóðri. Stígar verða stikaðir og margar fætur marka stígana að nýja lundinum. Einnig verða sett niður nokkur fjöldi trjá. Við komum að ...
Laugardaginn 27. september n.k. förum við í dagsferð til Grindavíkur. Mæting kl. 10 hjá Seltjarnarneskirkju. Áætluð heimkoma er kl. 15. Við munum m.a. hitta sr. Elínborgu Gísladóttur sóknarprest í Grindavík og snæða hádegisverð á veitingastaðnum Bryggjan sem staðsettur er við höfnina í Grindavík.
Stefán Atli Rúnarsson er viðskiptafræðingur og starfar við að fræða fólk um gervigreind. Hann mun kynna fyrir okkur notkun gervigreindar en hann býður upp á námskeið í notkun hennar m.a. fyrir fyrirtæki. https://chatgptnamskeid.is/fyrirtaekjanamskeid/ Fundarefni er í umsjá kynningarnecndar.
Fundarefnið 10. október sem er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn verður tileinkað Píeta samtökunum. Gunnhildur Ólafsdóttir sálfræðingur fjallar um starfsemi Píeta-samtakanna. Svana Helen heldur 3ja mínútna erindi. Píeta veitir gagnreynda og gjaldfrjálsa meðferð fyrir fólk með sjálfsvígshugsanir ...
Saman til góðs – á 80. umdæmisþingi RótarýUmdæmisþing Rótarý verður haldið 10. - 11. október í Garðabæ og verður í umsjón Rótarýklúbbsins Hofs. Við lofum skemmtilegri dagskrá sem mun m.a. innihalda fróðleg erindi, hópastarf, tónlist, dansleik, tækifæri til að kynnast og síðast en ekki síst góðan mat...
Í fyrirlestri sínum kemur Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, m.a. inn á starf sitt sem sérstakur erindreki framkvæmdastjóra Evrópuráðsins í málefnum barna í Úkraínu.
Sigríður Björk Gunnarsdóttir, umdæmisstjóri Rótarý 2025-2026 er gestur fundarins og segir frá áherslum í Rótarýstarfinu og gott tækifæri gefst til að spyrja. Tökum vel á móti Sigríði Björk og makar að sjálfsögðu velkomnir.
Félagi okkar Dr. Sigurvin Lárus Jónsson prestur í Vídalínskirkju í Garðabæ flytur starfsgreinaerindi sitt og blandar einnig inn í fræðilegri hlið starfs síns. Erindið kallar hann "Frá fornöld til íslenskra miðalda - klassísk fræði, Biblían og handritið AM 226".
Fundur er settur kl. 17, spjallrásin opnar kl. 16:45 og öll velkomin! Pétur, félagi okkar, fer með hugleiðingu fundar. Gestur fundar er Sigríður Björk Gunnarsdóttir, umdæmisstjóri starfsárið 2025 til 2026. Hún mun ræða áherslur á árinu, verkefni okkar og fleira. Fundi slitið kl. 18, spjallrásin o...
Fyrirlesari fundarins er Magnús Gunnarsson, formaður og framkvæmdastjóri Hauka og fv. bæjarstjóri. Hann fékk frjálsar hendur um efnistök en eflaust mun hann segja frá glæsilegu knatthúsi sem Hafnarfjarðarbær byggði starfsemi Hauka.
Þann 31. október heimsækir Pawel Bartoszek formaður utanríkismálanefndar Alþingis Rótarýklúbb Seltjarnarness. Hann mun fjalla um það sem er efst á baugi í utanríkis- og alþjóðamálum. Að auki verða 3 nýir félagar teknir inn. Ég hvet alla til að fjölmenna á fundinn.
Fyrirlesari á næsta fundi verður Óskar Arnórsson fjármálastjóri Rio Tinto á Íslandi. Hann mun fara yfir rekstur álversins í máli og myndum. Mikil umræða hefur verið um álverin og áhrif þeirra á íslenskt efnahagslíf.
Fundur er settur kl. 17, spjallrásin opnar kl. 16:45 og öll velkomin Pétur Bauer fer með hugleiðingu fundar 17:20 Soffía Heiða bauð gesti fundar, Ásgeiri Jónssyni, hæstaréttalögmanni, til okkar. Ásgeir mun segja okkur sitthvað um erfðir og erfðamál. Það verður áhugavert að heyra hvernig þessum mál...
Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch er fyrirlesari fundarins á fimmtudag. Hún mun fjalla um atvinnulíf innan líf- og heilbrigðistækni á Íslandi með áherslu á nýsköpun og sóknarfæri. Fundarefni var í höndum Sigurðar Guðnasonar
Umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi, Sigríður Björk Gunnarsdóttir heimsækir Rótarýklúbb Seltjarnarness föstudaginn 14. nóvember
Félagi okkar, Ólafur Haukur Magnússon, verður með starfsgreinaerindi á fundinum á fimmtudag. Hann er rekstrarhagfræðingur að mennt og starfar í dag sem aðjúnkt við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Ólafur Haukur hefur einnig starfað innan fiskiræktunar og er öflugur skógarbóndi í Mórudal á Barðastr...
Jón Karl Ólafsson mun fjalla um flugrekstur á Íslandi og reifa hvort þörf sé á tveimur íslenskum flugfélögum þegar tugir erlendra flugfélaga fljúga áætlunarflug til og frá landinu og engin íslensk flugfélög hafa verið langlíf að Icelandair undanskildu.
Fundurinn er settur kl. 17, spjallrásin opnar kl. 16:45. Öll hjartanlega velkomin á fundinn. Fundurinn er sameiginlegur fundur Rotary eClub Iceland og Rótarskots Húsavíkurklúbbsins. Rótarýfélagi Rótarskotsins byrjar fundinn á jákvæðum nótum. Klukkan 17:20 hefst erindi fundar. Elín Björnsdóttir s...
Formaður ferða- og skemmtinefndar, Joost Van Erven verður fyrirlesari dagsins og mun örugglega segja frá væntanlegri ferð klúbbsins til Lissabon. En Joost mun að ræða um siglingaþjóðina sem Holland var fyrr á öldum. Þeir fóru víða um heiminn og ætlar Joost að ræða meðal annars um tengslin milli Am...
Sigurður E. Þorvaldsson læknir fjallar um Íslandsvininn dr. Jean-baptiste Charcot og strand ‚Pourquoi pas?‘ á Mýrum árið 1936
Það verður aðventustund á fundinum í vikunni sem verðu í umsjá okkar Rósu Krístjánsdóttur djákna. Klúbburinn mun afhenda styrk til góðgerðarmála á fundinum. Fundarefni er í umsjá samfélagsnefndar.
Á fundinum sem er á vegum stjórnar verða niðurstöður kosninga til stjórnar fyrir starfsárið 2026-27 kynntar og fjallað um starfsárið sem er yfirstandandi. Farið verður yfir nýja könnun sem gerð var í haust hjá umdæminu um rótarýklúbba og fundi þeirra.
Eru hefðirnar lifandi á Íslandi eða rofnaði sambandið í sjálfstæðisbaráttunni? Alexandra Kjeld, umhverfisverkfræðingur hjá EFLU, tónlistarmaður og framkvæmdastjóri VÖKU þjóðlistahátíða segir frá starfi Vökufélagsins og Danslögum Jónasar, nýrri útgáfu með danstónlist sem spiluð var í Reykjavík um 18...
Hátíðartónleika Rótarý á Íslandi Sérstakur heiðursgestur tónleikanna verður Víkingur Heiðar Ólafsson einn fremsti píanóleikari heims og styrkþegi sjóðsins árið 2005. Víkingur mun afhenda styrki Tónlistarsjóðs Rótarý á tónleikunum og munu styrkþegarnir leika fyrir gesti ásamt fleira tónlistarfólki s...
Sævar Helgi Bragason verður fyrirlesari fundarins. Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Snæfellsnes, Höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Þetta er jafnframt fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík síðan 17...
Hallbjörn Reynir Hallbjörnsson sérfræðingur hjá Betri Samgöngum verður fyrirlesari okkar. Mun hann fræða okkur um Borgarlínuna. Fundarefnið var í umsjá Margrétar Eddu.
Fyrsti rótarýfundur ársins 2026 verður haldinn þann 16. janúar í Albertsbúð í Gróttu. Fyrirlesari verður Jónas Jónasson sviðsstjóri botnsjávarsviðs Hafrannsóknarstofnunar sem mun m.a. fjalla um hákarl og háffiska og almennt um Hafró. Á boðstólum verður þorramatur.
Ferðanefndin ætlar að fræða okkum um ýmislegt áhugavert í Lissbon og Portúgal, um sögu, menningu og fl.
Fundur nr. 963 frá upphafi en 18. á starfsárinu Fundurinn 4. febrúar 2026 var í umsjón Eiríks Arnarsonar. Guðni Gíslason, vefstjóri og kynningarstjóri Rótarýumdæmisins mætti og kynnti nýja Pólaris skráningarkerfið. Hann lagði áherslu á að gera starf klúbbsins sýnilegt, bæði fyrir félaga og ekki s...
Hrönn Margrét Magnúsdóttir eigandi Feel Iceland ehf. verður fyrirlesari fundarins en fyrirtækið er til húsa í miðbæ Hafnarfjarðar. Fyrirtækið var upphaflega stofnað af konum fyrir konur og fjögurra barna móðir úr Garðabæ sá tækifæri til að nýta fiskroð þegar hún sá á bát hjá tengdaföður sínum að hæ...
Klúbbþjónustunefnd hefur hönd um febrúarerindi. Við byrjum þó mánuðinn með fundi sem ber yfiskriftina klúbbfundur þar sem innri mál okkar klúbbs verða rædd sem og Rótarýmál. Jón Björn flytur 3ja mínútna erindi. Á matseðli er grillaður hamborgari, beikon, tómatar, salat og franskar. Þau sem vilja ...
Fundur er settur kl. 17, að venju, en spjallrásin opnar kl. 16:45 Hugvekja fundar Kl. 17:20 hefst erindi fundar sem er í boði Einars Sveinssonar, félaga í klúbbnum okkar. Gestur er Gylfi Sigfússon, sem mun fjalla um möguleika á göngum til Eyja. Fundi er slitið kl. 18, spjallrás opin til 18:15 Öl...
Fyrirlesari dagsins er Valdimar Víðisson og verður hann með starfsgreinaerindi. Verður það örugglega spennandi en hann hefur nú verið bæjarstjói í Hafnarfirði á annað ár. Mætum vel og hlýðum á skemmtilegt erindi. Fundarefni er í umsjá stjórnar: Ekki missa af góðum fundi í góðum félagsskap!
Fyrirlesari dagsins er Júlíus Freyr Bjarnason framkvæmdastjóri Rafbox ehf Hann mun segja okkur hvert við erum komin með rafvæðingu almenna samgangna á Ísland Þá mun hann kynna fyrir okkur næsta stig rafvæðingar sem nú er hafið með rafvæðingu stórra bíla og vinnuvéla Fundarefni er í umsjá alþjóða- o...
Anil, fyrir framan jeppan sem er ein stór auglýsing fyrir líffæragjafir
Fyrirlesarar dagsins eru Guðný Björk Eydal prófessor við félagsráðgjafardeild HÍ og Ragnheiður Hergeirsdóttir dósent við félagsráðgjafardeild HÍ Þær skrifuðu m.a. kafla í nýlega útkominni bók, „Crisis in Context“ sem fjallar um viðbúnað íslenskra heimila til að takast á við hamfarir. „How to Prep...
Fyrirlesari dagsins er Silja Traustadóttir, arkitekt hjá Eflu, verkfræðistofu Hún mun fjalla um nýja verndarsvæðið í Vesturbænum, en þetta er stærsta verndarsvæði í byggð á Íslandi, ef tekið er mið af fjölda húsa. Hvað þýðir það? Við fáum vonandi svörin. Fundarefni er í umsjá umhverfisnefndar þar ...
Öll velkomin! Fundur er settur kl. 17 og spjallrásin opnar kl. 16:45. Kl. 17:15: Erindi fundar. Oddný Mjöll Arnardóttir mun segja okkur frá starfi Mannréttindadómstóls Evrópu og svara spurningum. Erindi fundar er í boði Siggu okkar. Fundi er slitið kl. 18 en spjallrásin er opin lengur. Hér er ten...
Á þessum fundi kynnumst við nýju áhugamáli fólks víða um heim, en það er að ganga eða hlaupa allar götur viðkomandi sveitarfélags. Hjá mörgum verður þetta árátta eða bland af áráttu og áhuga á að kynnast öllum götum bæjarins. Fyrir aðra er þetta fín leið til að finna nýja göngu- eða hlaupaleið. Okk...
Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verður fyrirlesari okkar. Verður húsnæðismarkaðurinn á Íslandi örugglega til umræðu.
lkjkfsa faf afa lfaekja
Taktu daginn frá fyrir umdæmisþing Rótarý 2026 sem haldið verður í Mosfellsbæ 9. - 10. október. Undirbúningur er á frumstigi en þegar eru spennandi vangaveltu í gangi og þess virði að mæta. Elísabet Ólafsdóttir sem verður umdæmisstjóri Rótarý 2026-2026 mun kynna þingið á heimsóknum sínum til klúbba...