Arnhildur Pálmadóttir arkitekt er fyrirlesari 27. febrúar.
Fyrirlesturinn kallar hún "Kerfislæg krísa arkítektúrs í heiminum og umbreyting kerfa í
manngerðu umhverfi".
Umræðan um hið manngerða umhverfi er stundum
yfirborðskennd og slagorðakennd og gleymir oft kjarna málsins: líðan fólks og
gæði rýma og umhverfis. Arkitektúr er í kerfislægri krísu, sem hluti af einu
mest mengandi kerfi heims, og er of oft aftengdur þeim áhrifum sem hann
raunverulega getur haft. Arkitektúr á að bæta lífsgæði, tengja fólk saman og
gera hlutina betri, en það krefst umbreytinga á kerfum, ekki aðeins einstakra
verkefna.
Í okkar vinnu hjá s. ap arkitektum nálgumst við verkefni
á tvo vegu. Annars vegar vinnum við innan núverandi kerfa að raunverulegum
byggingarverkefnum og skipulagi sem eru sambland hönnunar og rannsókna, með
áherslu á betri efnisnýtingu, lægra kolefnisspor og einfaldari, ábyrgari
mannvirki. Hins vegar þróum við hugmyndaverkefni þar sem framtíðarkerfi og
lausnir eru ímynduð og prófuð með hermunum og rannsóknum til að varpa ljósi á
nútímann. Dæmi um slíkt verkefni er Hraunmyndanir (Lavaforming), fyrsta
framlag Íslands á Arkitektúrtvíæringnum í Feneyjum, en sýning á verkefninu var
nýlega opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Í fyrirlestrinum mun ég
tala um þau verkefni sem við höfum unnið að síðustu þrjú ár og af hverju við
erum að gera það.
Hér er svo slóð á sýninguna okkar í Hafnarhúsinu: https://listasafnreykjavikur.is/syningar/hraunmyndanir
Fundurinn er í umsjón ferðanefndar. Formaður er Goði Sveinsson.