Rótarýfundur nr. 19 á starfsárinu. Fundarefni er á ábyrgð Félagavals- og starfsgreinanefndar og er Garðar Ólafsson formaður hennar. Fyrirlesari á fundinum verður Kristján Gíslason sem hefur unnið sér það til frægðar að ferðast einn á mótorhjóli hringinn í kringum jörðina. Þriggja mínútna erindið er í höndum Ingibjargar Hjartardóttur.